Tvær rúður voru brotnar og nokkrum vínflöskum stolið þegar brotist var inn á veitingastaðinn Pizza 107 í Vesturbænum í morgun.Valgeir Gunnlaugsson, annar eiganda staðarins, segir innbrotið hafa náðst á eftirlitsmyndavélar staðarins. Málið er komið á borð lögreglu. TÓK STEIN ÚR VASANUM OG FLEYGÐI Í RÚÐUNA „Ég fæ símtal frá lögreglunni í morgun,“ segir Valgeir. „Þá var búið að brjóta ekki eina heldur tvær rúður og glerbrot úti um allt. Það var bara vín sem var tekið, sem ekkert fleira.“Að sögn Valgeirs sést innbrotsþjófurinn vel á eftirlitsmyndavélum staðarins. Á þeim sést viðkomandi koma á hlaupahjóli að veitingastaðnum haldandi á kassa, taka stein upp úr vasanum og grýta í rúðuna.Valgeir segist hafa velt því fyrir sér hvort þjófinn hafi einfaldlega vantað vín í partý næturinnar. Engum ö