Ítalska samkeppniseftirlitið rannsakar hvort snyrtivörufyrirtækin Sephora og Benefit hafi beint markaðsherferðum sínum að börnum, þar á meðal á kremum gegn öldrun húðar.Til skoðunar er á Ítalíu hvort fyrirtækin hafi beint markaðssetningu á andlitsmaska, serum og kremum sem sögð eru varna öldrun húðarinnar, að ungum stúlkum, jafnvel undir tíu ára. Samkeppniseftirlit Ítalíu segir aðferðir fyrirtækjanna tengjast víðtækari vanda sem sé húðumhirðuárátta barna.Fram kemur í umfjöllun The Guardian að samkeppniseftirlitið telji að svo virðist sem snyrtivörufyrirtækin, sem bæði eru í eigu frönsku samsteypunnar LVMH, hafi tekið upp sérstaklega lúmska markaðsstefnu sem feli í sér að mjög ungir áhrifavaldar hvetji ungt fólk til að kaupa alls kyns snyrtivörur. Húsleit var gerð í húsakynnum samsteypunnar