Sjö af átta þingmönnum Miðflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um bann við hylmingu andlits í opinberu rými. Í greinargerð um þingsályktunartillöguna kemur fram að tilefnið sé að skapa skýran og heildstæðan lagaramma um atriði sem varða bæði almannaöryggi, framkvæmd opinberrar þjónustu og grundvallarskilyrði mannlegra samskipta í opnu og lýðræðislegu samfélagi.Þar segir einnig að sértæka og skýra meginreglu sem tekur til kylmingar andlits í opinberu rými skorti í því almenna ákvæði um allsherjarreglu, öryggi og heimildir stjórnvalda til að krefjast auðkenningar við tilteknar aðstæður á Íslandi.Flutningsmenn tillögunnar eru Karl Gauti Hjaltason, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Snorri Másson og Þorgrímur Sigmundss