Framkvæmdir vegna stækkunar Sjúkrahússins á Akureyri eru fram undan, en óskað var eftir tilboði í fyrsta áfanga verksins í vikunni. Vegna stækkunar á sjúkrahúsinu til suðurs þar sem nú eru bílastæði, er óskað eftir tilboði í gerð nýrra bílastæða og veitukerfis.Tilboðum þarf að skila í verkið fyrir lok næsta mánaðar. Útboðið er á vegum Nýs Landspítala ohf.Ný legudeild við SAk hefur verið á dagskrá í áratug en 2024 var loks undirritaður samningur um bygginguna, að lokinni samkeppni um hönnun hennar. Við undirritunina 2024 var haft eftir þáverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, að jarðvinna ætti að hefjast strax ári síðar og verkinu yrði hraðað eins og hægt væri. Dýrt væri að tefja framkvæmdir sem þessar.Nýbyggingin verður um 9.200 fermetrar með legudeildir skurð- og lyflækningadei