Hljómsveitin Kaleo heldur stórtónleika á Þingvöllum í júní. Gert er ráð fyrir því að 20 þúsund manns sæki tónleikana. Þjóðgarðsvörður segir allar ráðstafanir verða gerðar til að koma í veg fyrir röskun í Þjóðgarðinum. Kaleo hélt tónleika í Vaglaskógi í fyrrasumar og tónleikagestir voru hátt í tíu þúsund.Einar Á. E. Sæmundssen þjóðgarðsvörður segir þetta í fyrsta sinn sem einkaviðburður af þessum toga verði haldinn á Þingvöllum en að ýmiss annars konar hátíðarhöld hafi áður farið fram í þjóðgarðinum, til að mynda Kristnihátíðin árið 2000 þar sem um 25 þúsund manns komu saman.Hann segir það þegar hafa verið til umræðu innan þjóðgarðsins að halda viðburði til að fá fleiri Íslendinga á Þingvelli, sem hafi kannski ekki komið áður. Beiðni Kaleo um tónleikahald í þjóðgarðinum hafi því verið kærko