Engar viðvaranir eru í gildi vegna veðurs sem stendur en gular viðvaranir taka gildi klukkan fjögur og fimm síðdegis vegna suðaustan hvassviðris eða storms og snjókomu á Faxaflóa, Suðurlandi og Suðausturlandi.Viðvaranirnar munu ná til flestra landshluta að undanskildu Norðausturlandi og Austfjarða. ERFIÐ AKSTURSSKILYRÐI Aksturskilyrði verða erfið á Reykjanesbraut, Kjalarnesi og Hellisheiði eftir kl 16 í dag vegna hríðar, en skyggni batnar með rigningu og slyddu skömmu síðar.Vindhviður verða yfir 35 m/s við Hafnarfjall og á Kjalarnesi þá og snjóar áfram á Hellisheiði og í Þrengslum og býast má við hríð á fjallvegum norðvestantil á landinu í kvöld. Það lægir og styttir upp suðvestanlands fyrir miðnætti.Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði og Brattabrekka eru nú opnar en þeim var lokað í gær. Há