Það verða til algjörir töfrar þegar hinu hversdagslega er blandað saman við það sem kalla má háleitt og fínt í einni og sömu myndinni, segir Loji Höskuldsson listamaður. Í verkum sínum er hann gjarn á að upphefja hið litla og smáa og setja það á sama stall og það sem þykir smekklegt og fágað.„Það er eitthvað sem gerist í því ferðalagi sem ég heillast rosalega af, að taka einhvern hlut sem allir þekkja og allir eiga og allir vita hvað er og setja hann á sama stall og þetta sem fáir eiga eða fáir geta eignast,“ segir hann. FJALLAR UM FJÖLSKYLDU SEM ER MEÐ FINN JUHL Á HEILANUM Á dögunum opnaði Loji sýningu sem nefnist Nágrannar í galleríinu V1 í Kaupmannahöfn. Nafnið er dregið af ímyndaðri fjölskyldu sem býr í húsi við hliðina á húsi danska hönnuðarins Finn Juhl.„Þetta er fjölskylda sem er