Styggð kom að sælkerum á Alþingi við nýlega inngildingu heilsufæðis í þinghúsinu. Sumir hverjir óttuðust um sögufræga tertuhefð í þinghúsinu og vildu kenna þingflokksformanni Samfylkingarinnar um meinta aðför að kræsingunum. Hann kannast þó hvorki við að hafa slíkt áhrifavald né stæka andúð á kökum.