Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Viðskiptavinir indó yfir hundrað þúsund

Viðskiptavinir indó sparisjóðs eru orðnir yfir 100.000 en þeim hefur fjölgað um 30.000 á árinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá indó. Þar segir að tekjur félagsins hafi aukist um rúmlega 30% á síðasta ári og verið tæpir 2,4 milljarðar. Tap var þó á rekstrinum sem nam 517 milljónum.„Þrátt fyrir taprekstur er lausafjárstaða indó sterk enda eru fjárfestingar sjóðsins fyrst og fremst í ríkistryggðum verðbréfum og innlánum hjá Seðlabanka. Reikna má með að indóar hafi alls sparað 1.349 milljónir á síðasta ári sem annars hefðu runnið til banka í formi gjalda eða álags á kortafærslur,“ segir í tilkynningunni.Kortavelta hjá indó jókst um 57% á milli ára en hlutdeild sparisjóðsins í debetkortaveltu var 17% á síðasta ári. Þá var hlutafjáraukning tryggð í vikunni.„Áframhaldandi fjölgun viðski
Viðskiptavinir indó yfir hundrað þúsund

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta