Tiger Woods, einn sigursælasti kylfingur allra tíma, var handtekinn í dag grunaður um akstur undir áhrifum. Kylfingurinn var handtekinn eftir að hann klessti á aðra bifreið með þeim afleiðingum að hans eigin bíll, svartur Range Rover, valt á hliðina. Slysið átti sér stað í Jupiter Island í Flórída en þar er Woods búsettur.John Budensiek, sýslumaður í Martin-héraði, segir Woods hafa litið út fyrir að vera undir áhrifum á vettvangi. Kylfingurinn blés í öndurmæli á slysstað en neitaði hins vegar að gefa þvagsýni.„Þegar við báðum hann um þvagsýni neitaði hann því og var þess vegna ákærður fyrir ölvunarakstur, eignaspjöll og að neita að taka lögmætt próf vegna slyssins,“ sagði Budensiek. Woods var þó heimilt að neita að veita þvagsýni, en það er löglegt í Flórída.Sýslumaðurinn sagði sérfræðinga