Fulltrúar Framsóknarflokks og Miðflokks segja fjármálaætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í gær metnaðarlausa. Útgjöld til samgöngumála valdi sérstökum vonbrigðum enda hafi ríkið ráðist í gjaldheimtu undir því yfirskini að afraksturinn ætti að renna til samgangna.„Hún er vonbrigði þessi áætlun. Það er verið að tala hér um hallalaus fjárlög 2027. Afgangurinn verður 1,1 milljarður sem er náttúrlega ekki neitt í 1.700 milljarða króna fjárlögum,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins.Hann segir útgjöld til framhaldsskóla og löggæslu vonbrigði og ekki síður til samgangna. „Við erum að sjá framlög til samgöngumála á niðurleið þrátt fyrir loforð um það í fjárlagaumræðunni um átján milljarða sem áttu að koma inn á ári í formi kílómetragjalds, vörugjalda og veiðigjalda.