Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ekkert ferðaveður og vegir víða ófærir

Ófært er frá sunnanverðri Holtavörðuheiði að Varmahlíð, og bæði um Vatnsskarð og Þverárfjall. Lögreglan á Norðurlandi vestra greinir frá þessu í tilkynningu á Facebook-aðgangi sínum, en þar segir jafnframt að ekkert ferðaveður sé í umdæminu.Það er ekki aðeins á Norðurlandi vestra sem vegir eru ófærir. Nesjavallaleið og Þingvallavegur um Mosfellsheiði og Kjósarskarðsvegur við Fremri-Háls eru það einnig. Hringvegurinn um Hellisheiði og Þrengslavegur eru hins vegar opnir, en samkvæmt vefsíðu Vegagerðarinnar, umferdin.is, er hált á þeim.Þá er ófært um Djúpveg á milli Skarðsfjalls og Súðavíkur á norðanverðum Vestfjörðum.Gul veðurviðvörun er í gildi í Faxaflóa, Breiðafirði, á Ströndum og Norðurlandi vestra, á Suðausturlandi og á Miðhálendinu vegna hvassviðris eða storma. Á miðnætti fellur gul vi
Ekkert ferðaveður og vegir víða ófærir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta