70 þúsund máltíðir sem voru á leið í ruslið lentu á matarborðum Íslendinga í fyrra - í gegnum appið Humble, sem á að draga úr matarsóun. Stærstu notendurnir eru hagsýnar húsmæður.Humble er öllum aðgengilegt að kostnaðarlausu og á að hjálpa fyrirtækjum að minnka matarsóun og bjóða upp á matvöru og ýmislegt annað með afslætti. „Fyrirtæki geta sett inn vörur sem eru á síðasta snúningi,“ segir Hlynur Rafn Guðmundsson, einn stofnenda og eigenda Humble.Vörurnar eru síðan yfirleitt seldar á um helmings afslætti á um 90 útsölustöðum og eru ýmist sóttar eða sendar. BAKKELSI, BRAUÐ OG ÝMSIR RÉTTIR Um er að ræða bakkelsi og brauð úr bakaríum, ýmsa rétti af veitingastöðum, matvöru úr matvöruverslunum og snyrtivörur, svo eitthvað sé nefnt. Spurður hvers vegna fyrirtæki selji vöru sína í gegnum Humbl