Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, segir að forgangsraða hefði þurft með skýrari hætti í fjármálaáætluninni sem kynnt var í gær. „Það er þörf á alvöru efnahagsaðgerðum og þessi fjármálaáætlun býður ekki upp á það,“ segir hún.Fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 var kynnt í gær.„Það hefði þurft að forgangsraða með skýrari hætti verkefnum sem geta mögulega beðið til að búa til svigrúm til að ná niður verðbólgu,“ segir Lilja.Bregðast þurfi við mikilli verðbólgu og háu vaxtastigi sem bitnar á heimilum landsins. Það mætti gera með tímabundinni lækkun matarskatts til dæmis, olíuþaki eða vaxtavernd fyrir heimilin. ÁÆTLUN TAKI EKKI MIÐ AF STÖÐUNNI Samhliða slíkum aðgerðum hefði þurft að skapa svigrúm á móti. Sjálfri þykir Lilju eins milljarða afgangurinn af rekstri ríkissjóðs sem