Formaður Kennarasambands Íslands segir minnisblað Ingu Sæland menntamálaráðherra um breytingar á skólakerfinu vera sérkennilegt í ljósi samtals milli kennara og stjórnvalda í kjölfar kjarasamninga í fyrra.„Kennarasambandið, Samband íslenskra sveitarfélaga og kjara- og mannauðssvið ríkisins hafa síðan í mars á síðasta ári fundað reglulega,“ sagði Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, í kvöldfréttum sjónvarps.„Við áttum okkur ekki alveg á þessu útspili, hvort hér sé menntamálaráðuneytið einhvern veginn að stíga inn í það ferli, sem er þó aðili að málinu.“Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra vill fjölga kennsludögum og kennslutímum til að bæta námsárangur íslenskra barna. Skóladagar á Íslandi eru 180 dagar samkvæmt grunnskólalögum og fjöldi kennsludaga er áætlaður 170 daga