Gæða- og eftirlitsstofnun velferðamála gerir miklar athugasemdir við vinnubrögð barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar. Í skýrslu stofnunarinnar segir að jafnvel mörg ár hafi liðið án þess að starfsmaður barnaverndar heimsótti fósturheimili. Stofnunin gerir 25 tillögur um endurskoðun eða úrbætur.Meðal athugasemda GEV er að töluverður misbrestur á skráningu gagna og varðveislu upplýsinga, ekki hafi verið gengið úr skugga um að vistunaraðilar væru með tilskilin leyfi og ekki hafi verið gætt á fullnægjandi hátt að réttindum barna við málsmeðferð.Í skýrslunni eru tekin dæmi þar sem til að mynda var tekin ákvörðun um vistun barns eða breytingar á henni án þess að ljóst væri hvernig ákvörðunin var tekin, eða þar sem óljóst var að samþykki foreldris hafi legið fyrir. Þá hafi ekki verið haldið utan u