Útgjöld á hvern nemanda í grunn- og framhaldsskóla hér á landi eru þau hæstu innan OECD-landanna.Námsárangurinn er á sama tíma undir meðaltali og kennsluskylda kennara lítil, samkvæmt minnisblaði sem Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lagði fyrir ríkisstjórnina í vikunni.Í minnisblaðinu segir að nauðsynlegt sé að taka umræðuna upp í kjarasamningsviðræðum kennara og gera starfsaðstæður þeirra sambærilegri við aðra opinbera starfsmenn. ÍSLAND UNDIR MEÐALTALI Í SAMANBURÐI VIÐ ÖNNUR LÖND Inga segir nauðsynlegt að gera breytingar á íslensku skólakerfi.„Ég hef nú ítrekað talað um það og fordæmt í rauninni það að hér skuli nánast helmingur barnanna okkar útskrifast eftir 10 ára grunnskólagöngu með mjög svo ónægan lesskilning og nánast ólæs í einhverjum tilvikum. Og já, við þurfum að br