Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

60 rýma hjúkrunarheimili áformað á Húsavík

Laki og tengd félög voru með hagstæðasta tilboðið í nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili á Húsavík í útboði á vegum Framkvæmdasýslu Ríkiseigna. Hjúkrunarheimilið verður rúmlega 4.000 fermetrar. Verkefnið verður eitt af stærri uppbyggingarverkefnum á svæðinu á næstu árum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Laka.Stjórnvöld hafa kynnt átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila og fjölgun rýma. Mikil bið eftir hjúkrunarrýmum hefur haft áhrif á bráðamóttöku Landspítalans því margir bíða á legurýmum sjúkrahússins.Myndin sýnir hvernig áformað er að hjúkrunarheimilið líti út.Aðsend / Laki
60 rýma hjúkrunarheimili áformað á Húsavík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta