Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fyrstu fundir mjög flókinna stjórnarmyndunarviðræðna að baki

Stjórnarmyndunarviðræður hófust formlega í Danmörku í morgun með fundum Mette Frederiksen forsætisráðherra og formönnum annarra flokka sem fengu menn kjörna á danska þingið í kosningunum á þriðjudag.Jafnaðarmannaflokkur Frederiksen galt afhroð og fékk sína verstu kosningu í meira en hundrað ár. Þrátt fyrir það fékk flokkurinn flest atkvæði og formaðurinn því með stjórnarmyndunarumboð frá konungi.Róttæki vinstriflokkurinn (sem er miðju-hægriflokkur og hvorki róttækur né vinstriflokkur) segist styðja Frederiksen og tilkall hennar til forsætisráðherrastólsins. Það gerir Sósíalíski þjóðarflokkurinn sömuleiðis.Frederiksen og Jafnaðarmannaflokkur hennar keyrðu sína kosningabaráttu mikið til á loforðum um auðlegðarskatt, sem flokkar í hægriblokk danskra stjórnmálaflokka styðja fæstir. Erfitt yrði
Fyrstu fundir mjög flókinna stjórnarmyndunarviðræðna að baki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta