Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rússneska snekkjan fékk leyfi til að taka olíu og sækja vistir í lögreglufylgd

Snekkjunni La Dacha sem meinuð var hafnarkoma á Akureyri síðustu helgi var í dag leyft að koma að landi til þess að taka olíu og sækja helstu vistir áður en hún heldur burt frá Íslandi.Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að hafnbanninu hafi ekki verið aflétt.„En til þess að snekkjan eigi þess kost að sigla burt frá landinu þá var samþykkt af öryggissjónarmiðum að hleypa henni til hafnar til að sækja olíu og nauðsynlegustu vistir,“ segir Ásgeir. „Það er svo ferðin frá landinu geti gengið sem best fyrir sig.“Landhelgisgæslan samþykkti að olía yrði sett á skipið á þeim grundvelli að bæði er hlutverk Landhelgisgæslunnar að tryggja öryggi þeirra sem sigla á hafsvæðinu umhverfis Ísland en einnig kveði alþjóðlegur hafréttur á um að tryggja eigi öryggi sjófarenda. Hafn
Rússneska snekkjan fékk leyfi til að taka olíu og sækja vistir í lögreglufylgd

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta