Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, segir ekki nóg að gert til að létta undir með almenningi í fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 sem kynnt var í gær.Í áætluninni voru minnkuð umsvif ríkisins boðuð sem og lækkun útgjalda. Gangi áætlunin eftir verður afgangur af rekstri ríkissjóðs rúmlega 34 milljarðar árið 2031.„Þetta eru veruleg vonbrigði, fyrsta yfirferð á þessari fjármálaáætlun,“ segir Finnbjörn.Hann segir að niðurskurður sé boðaður á mörgum sviðum. „Við sjáum húsnæðisbæturnar rýrna, barnabæturnar rýrna og stofnframlög til almenna íbúðakerfisins. Það er ekkert í þessari fjármálaáætlun sem styður það að við þurfum aukið húsnæði hér í landinu.“ VILL LÁTA RÉTTA HLUT LEIGJENDA Fátt í áætluninni, segir Finnbjörn, kemur til móts við vinnandi fólk. Til dæmis er boðuð frekari tekjuöflun af