LINDY LIN Lindy Lin er tónskáld og listakona sem flutti frá Shanghai í Kína til Íslands árið 2023. Nú býr hún í Reykjavík og er í meistaranámi í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi við Listaháskóla Íslands. Fyrsta plata hennar kom út 2022 þegar hún bjó enn í Shanghai. Hér á landi hefur hún meðal annars gefið út plötuna Palm upon a palm með hávaðarokkhljómsveitinni Yang Soup. Hljóðheimur Lindy er þó frekar rólegur og hún vinnur með kínverska flautu, kassagítar og raddspuna meðal annars.Uppi á sviði var Lindy með alls kyns búnað og þar var mest áberandi saumavél og bjölluarmbönd sem hringlaði í þegar hún hreyfði sig. Hún segir að allir hlutirnir hafi einhverja tengingu við líf hennar. Saumavélin tengist æskunni og hennar reynsla er að flestar konur í foreldrahlutverki eigi saumavél sem getur