Húsið sem áður hýsti Kristjánsbakarí við Hrísalund á Akureyri, gæti vikið fyrir nýrri byggingu, verði af áformum sem kynnt voru skipulagsráði bæjarins nýverið. Hugmynd er um að reisa þar sex hæða hús, með atvinnurými á neðstu hæð og íbúðum á efri hæðum.Kristjánsbakarí lokaði afgreiðslu sinni í Hrísalundi og í göngugötunni í Hafnarstræti í september í fyrra. Ástæðan var sögð þungur rekstur árin á undan, en enn er framleitt undir vörumerkinu Kristjánsbakarí fyrir heildsölumarkað.Gæðabakstur var leigjandi að húsinu og var með starfsemi eftir lokun bakarísins, fram í febrúar á þessu ári. Eigandi hússins hyggst nú gera breytingu. TÓKU VEL Í TILLÖGUNA Eigi að verða af byggingunni þarf að gera breytingu á aðalskipulagi, en svæðið er núna skráð sem athafnasvæði og því ekki reiknað með íbúðum á