Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Utanríkisráðherra Írans segir árás Bandaríkjanna á skóla stríðsglæp

Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, segir að árás Bandaríkjahers á skóla í Minab-héraði landsins fyrir tæpum mánuði hafi verið stríðsglæpur.Minnst 165 voru drepnir í árásinni, að mestu leyti skólabörn. Fjöldi látinna hefur þó verið lítillega á reiki.Myndskeið sem náðust af árásinni sýna Tomahawk-flugskeyti, sem Bandaríkjaher er einn um að nota, steypast til jarðar á miklum hraða. Mikil sprenging verður í kjölfarið.Fundur mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í dag var með öllu lagður undir umræður um árásina. Íran, Kúba og Kína fóru fram á að árásin yrði rædd á sérstökum fundi.„Meira en 175 nemendum og kennurum var slátrað í köldu blóði,“ segir Araghchi, í árás sem hann segir að hafi verið útreiknuð.Volker Turk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að hann fyllist skelfingu við
Utanríkisráðherra Írans segir árás Bandaríkjanna á skóla stríðsglæp

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta