Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur, telur að sú aðferð að lækka á skatta til að hemja verðbólgu dugi skammt ef ekki yrði farið í mótvægisaðgerðir á sama tíma til að verjast aukinni eftirspurn í hagkerfinu. Það sé þó mögulegt að nýta slíkt til þess að halda verðbólgu í skefjum tímabundið svo kjarasamningar haldi.„Aðstæðurnar núna eru svolítið öðruvísi vegna þess að við erum með þetta forsenduákvæði kjarasamninga sem núna vofir svolítið yfir hagkerfinu og kemur til endurskoðunar í september,“ segir Konráð.„Það fer bara eftir mældri verðbólgu sem ríkið getur sannarlega haft áhrif á. Þannig að mér finnst kannski að ef maður horfir á það og hugsar hvort það sé eitthvað tímabundið sem komi til greina þá finnst mér málið horfa svolítið öðruvísi við.“Konráð telur lækkun skatta ekki til þess fallna