Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð Kristinsson, tvíeykið sem hefur þegar unnið sér sess í hjörtum Taskmaster áhorfenda, eru að taka samstarfið á næsta stig. Þeir munu saman stýra nýju hlaðvarpi sem fylgir íslensku Taskmaster þáttunum á Sýn+. Vikulega munu þeir kafa djúpt í verkefnin, augnablikin og allt það sem gerðist á bak við tjöldin.