Frá og með deginum í dag verður ekki hægt að leggja bílum í almennum stæðum við Keflavíkurflugvöll nema búið sé að bóka fyrirfram. Verður fyrirkomulagið þannig fram yfir páska.Þetta segir í tilkynningu frá Isavia.Þar segir að ekki verði hægt að aka inn á bílastæðið nema búið sé að bóka fyrirfram. Almenn stæði eru einnig kölluð P3 en þar er hægt að leggja bílum til lengri tíma.Búist er við mikilli umferð um flugvöllinn um páskana í næstu viku.„Fyrirsjáanlegt er að bílastæði flugvallarins verði fullnýtt fyrir og yfir hátíðarnar. Gestir Keflavíkurflugvallar eru hvattir til þess að mæta snemma í flug og þau sem koma á bíl að bóka stæði fyrir fram,“ segir í tilkynningu Isavia.