„Fyrstu viðbrögð mín voru að hlæja,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti í gær.„Það var búið að tala svo lengi um að þetta ætti að verða lausnin. Þarna myndi ríkisstjórnin birta upplýsingar um hvernig ætti að takast á við efnahagsvandann. Niðurstaðan er fyrst og fremst sú að það ætti að hækka skatta, auka álögur á almenning næstu árin og ná hallalausum frálögum 2027 upp á einn milljarð króna.“Hann segir það mjög lágt hlutfall áætlaðra tekna ríkisstjórnarinnar. „Það er allur árangurinn sem á að nást með auknum álögum.“ EKKERT AÐHALD Bæði Sigmundur Davíð og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, telja fyrirætlanirnar síst til að hjálpa þjóðinni meðan mikil verðb