Fimm fulltrúar, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, höfnuðu í vikunni beiðni um íbúakosningu um fyrirhugað menningarhús á Sauðárkróki. Minnihlutinn í sveitarfélaginu er ósáttur við niðurstöðuna og undrar sig á henni.„Já ég er mjög hissa á þessu að þau vilji ekki lofa íbúunum að ákveða þetta. Hvort þetta sé hræðsla um að þetta verði fellt eða hvað,“ segir Sveinn Finster Úlfarsson, fulltrúi Byggðalistans í Skagafirði.Að mati meirihlutans hefði beiðnin um íbúakosningu þurft að koma fram fyrr. Skrifað var undir samkomulag við ríkið í maí 2023 um bygginguna. Ef að efna hefði átt til íbúakosningu um málið hefði þurft að tilkynna um undirskriftarsöfnun innan við fjögurra vikna frá því.Afstaða minnihlutans er hins vegar að nú séu forsendur breyttar, teikningarnar sýni dýrt hús, byggingavísitala hefur