Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hæstiréttur bannar manni för eftir að hann klippti á 30 veglása

Hæstiréttur felldi í dag úr gildi ákvörðun sýslumannsins á Suðurlandi sem hafði hafnað því að setja lögbann á för manns um einkaveg í landi Iðu I og Iðu II í Bláskógabyggð. Veginn notaði maðurinn til að komast að veiðisvæðum við Stóru-Laxá. Þess í stað lagði Hæstiréttur fyrir sýslumann að leggja slíkt lögbann á för mannsins, og annarra sem kynnu að vera á hans vegum, gegn hæfilegri tryggingu. Dómurinn sem Hæstiréttur kvað upp í dag er nýjasti kaflinn í áralangri deilu landeigenda við forsvarsmann Bergsnasar sem tók á leigu veiðirétt í Stóru-Laxá til tíu ára í árslok 2021. Leigutakinn hefur farið um svokallaðan Veiðiveg á farartækjum og beltisgröfu til að komast að veiðisvæðum þrátt fyrir andstöðu landeigenda. Vegagerðin og sveitarstjóri Bláskógabyggðar hafa staðfest að vegurinn sé ekki í e
Hæstiréttur bannar manni för eftir að hann klippti á 30 veglása

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta