Formaður BSRB segir fjármálaráðherra tala gegn betri vitund þegar hann heldur því fram að ríkisstarfsmönnum hafi fjölgað hraðar en starfsfólki á almennum vinnumarkaði síðustu ár. Þeim hafi þvert á móti fækkað hlutfallslega. Markmið um fækkun stöðugilda næstu ár sé vonbrigði og byggi ekki á faglegri stefnumótun.