„Það stendur til að vera á Þingvöllum,“ segir Jökull Júlíusson forsprakki hljómsveitarinnar Kaleo um væntanlega stórtónleika, Bergmál á Þingvöllum, á sumarsólstöðum 20. júní.„Við erum gríðarlega spenntir að fá að gera þetta og vissir um að þetta verður töfrandi stund,“ segir Jökull og bætir við að þess verði vel gætt að bera virðingu fyrir Þingvöllum. „Þetta er helgasti staður Íslands og það þarf að huga að öllu, að bera virðingu fyrir staðnum.“Jökull ræddi fyrirhugaða tónleika og ævintýri Kaleo síðustu vikur og mánuði í viðtali á Rás 2.Þú getur hlustað á viðtalið við Jökul Júlíusson og tónleikahaldarann Jakob Frímann í spilaranum hér fyrir ofan.