Fegurðardrottningin Kristín Anna Jónasdóttir, sem bar titilinn Miss Cosmo Iceland 2025, hefur sagt skilið við samtökin Ungfrú Ísland og segir farir sínar ekki sléttar. Manúela Ósk Harðardóttir, framkvæmdastjóri keppninnar, segir yfirlýsingu Kristínar ekki eiga við rök að styðjast, hún hafi fengið töluverðan stuðning og glöð gengist undir samning við keppnina.