Veður og færð hefur sett mark sitt á atkvæðagreiðslu um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps sem lýkur á morgun. Vegurinn í Árneshrepp verður lokaður í dag, opnunartími kjörstaðar á Drangsnesi styttur og ekki verður flogið á Gjögur.Kosning hófst 14. mars og síðasti kjördagur er á morgun. Kjörstaðir hafa verið opnir tvo síðustu laugardaga auk þess sem fólk hefur getað komið á skrifstofu sveitarfélaganna til að kjósa.„Að auki er boðið upp á póstkosningu ef fólk sér sér ekki fært að mæta á kjörstaði,“ segir Hildur Aradóttir, formaður yfirkjörstjórnar um sameiningu Kaldrananeshrepps og Árneshrepps.Það er norðanhríð á Ströndum og útséð um að vegurinn norður í Árneshrepp verði opnaður í dag.Hildur segir veðrið litlu skárra á Drangsnesi og þar verði lokað fyrr í dag. „Skrifstofa kaldranane