Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, er sagður hafa hvatt Bandaríkjastjórn til að halda árásum á Íran áfram og herða á, ef eitthvað er. Frá þessu greindi New York Times á dögunum og Guardian segist hafa þetta fengist staðfest hjá heimildarmanni innan öryggisgeira Sádi Arabíu.