Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Maður sem fannst ekki dæmdur í fimm mánaða fangelsi

Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í vikunni erlendan karlmann fyrir peningaþvætti. Hann tók á móti 3.000.000 krónum, ávinningi af fjársvikum sem voru framin í gegnum Facebook, samkvæmt ákæru.Maðurinn var ákærður í ágúst í fyrra og átti að mæta fyrir dóm í september. Þá var hann hvergi að finna, sækjandi sagði að maðurinn hefði ekki fundist og verjandi hafði ekki haft uppi á skjólstæðingi sínum.Aftur var réttað yfir manninum í janúar en enn bólaði ekkert á honum. Þá var búið að birta ákæru í Lögbirtingablaðinu og boða hann fyrir dóm.Maðurinn var að lokum sakfelldur fjarstaddur og dæmdur til fimm mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.Héraðsdómur Reykjavíkur.RÚV / Ragnar Visage
Maður sem fannst ekki dæmdur í fimm mánaða fangelsi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta