Sölvi Steinarr Jónsson ætlaði sér alltaf að verða bóndi, en lífið fór með hann í aðrar áttir. Þó hefur hann fengið útrás fyrir sinn innri bónda með áhuganum á gróðurrækt og reisti hátæknigróðurhús í Hafnarfirði.„Við ræktum grænmetið okkar í tjörn. Engin mold, bara vatn og örlítill áburður. Það er mjög hreinlegt og eiginlega skilvirkara“.Stolt gróðurhússins er basilíkan, meðal annars. Auk þeirrar hefðbundnu er ræktuð smávaxin grísk basilíka og einnig fjólublátt afbrigði.Í miðju jurtaríkinu stendur fallegur veitingastaður og kokkarnir sækja krydd, tómata, og salöt í matseldina. Þeir nota líka blóm úr gróðurhúsinu sem skraut á diskana. „Allt sem er ræktað hér má borða,“ segir hann.„Það má segja að ég sé nú loks orðinn bóndi með skepnur, því hér eru býflugur sem vinna sitt verk á daginn.“