Röskva - samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, bar sigur úr býtum í Stúdentaráðskosningum Háskóla Íslands í gær. Röskva hlaut 11 af 17 fulltrúum í Stúdentaráði auk fulltrúa í Háskólaráði. Samtökin hlutu meirihluta fulltrúa á 4 af 5 sviðum háskólans.Röskva hefur þar með náð meirihluta í Stúdentaráði, en undanfarin tvö ár hefur Vaka - Félag lýðræðissinnaðra stúdenta verið í meirihluta. > Slagorð okkar var að stúdentar eigi betra skilið, stúdentar voru sammála. Sigur Röskvu er sigur fyrir hagsmunabaráttu stúdenta og jafnrétti allra háskólanema til náms,’’ er haft eftir Ármanni Leifssyni, forseta samtakanna, í tilkynningu frá Röskvu.