Hagsmunasamtök landeigenda vegna Holtavörðuheiðarlínu 3 telja að þær breytingar sem boðaðar eru á raforkulögum feli í sér verulega skerðingu á réttindum landeigenda, einkum afnám banns við því að framkvæmdir hefjist áður en eignarnám eða samkomulag um bætur liggur fyrir. Það stangist jafnframt á við stjórnarskrá landsins.