Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að rannsóknir á ábendingu um meint kynferðisbrot gegn leikskólabarni á Akureyri hafi ekki leitt neitt í ljós sem stutt hafi við framburð um að brotið hafi verið gegn barninu. Hún segir að aðstandandi barnsins hafi sagt lögreglu að ungur maður hefði viðhaft óviðeigandi háttsemi gagnvart barninu. Hann vann á leikskólanum Tröllaborgum en þekkti barnið einnig af öðrum tengslum.„Rannsókn málsins beindist að kynferðislegri áreitni einkum vegna meintra kossa. Við rannsóknina kom ekkert fram sem studdi framburð aðstandanda. Rannsókn var hætt í málinu í október 2024,“ segir í tilkynningu lögreglunnar á Facebook.Lögregla hóf rannsókn að nýju eftir að niðurfelling málsins var kærð til ríkissaksóknara.„Áður en Ríkissaksóknari hafði tekið afstöðu í málinu komu freka