Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ræktuðu kannabis í blokkaríbúð

Karl og kona voru í gær dæmd til fimm mánaða fangelsisvistar fyrir kannabisræktun. Refsingin er bundin skilorði til tveggja ára en dómstóllinn gerði 123 kannabisplöntur, 370 grömm af kannabisstönglum og 12.590 grömm af kannabislaufum upptæk auk einnar loftsíu, fimm LED-ljósagrinda, eins guls ljóslampa, fjögurra LED-ljóslampa, fjögurra tímarofa, þriggja straumbreyta og eins farsíma.Fólkið var staðið að kannabisræktun í september 2023. Þá fannst kannabis-efnið og aðrir munir sem voru gerðir upptækir í íbúð á þriðju hæð fjölbýlishúss á höfuðborgarsvæðinu. Kannabislauf. Safnmynd.Freeimages / Mateusz Atroszko
Ræktuðu kannabis í blokkaríbúð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta