Pólsk stjórnvöld ætla að lækka virðisaukaskatt af eldsneyti úr 23% niður í 8% vegna síhækkandi olíuverðs. Olíuverð hefur rokið upp síðan Bandaríkin og Ísrael gerðu árásir á Íran fyrir tæpum mánuði. Það er nú í slíkum hæðum að annað eins hefur ekki sést síðan innrás Rússa í Úkraínu hækkaði verðið upp úr öllu valdi.Auk þessara ráðstafana ætla pólsk stjórnvöld að lækka olíugjöld og þá mun orkumálaráðherra landsins setja verðþak á eldsneytislítrann á degi hverjum. „Við höfum ákveðið að grípa til aðgerða þótt við vitum fullvel að staðan á eldsneytismarkaði í Póllandi og í heiminum stýrist aðallega af því sem gerist í stríðinu í Mið-Austurlöndunum,“ sagði Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, eftir ríkisstjórnarfund í gær. Auk alls þessa verða nýir skattar lagðir á hagnað olíufélaga, eitthvað