Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fundu nýjar ferðir fyrir 3600 farþega Icelandair

Fella þurfti niður ellefu flugferðir frá Keflavíkurflugvelli í gærmorgun og var tíu ferðum seinkað þangað til seinni partinn vegna óveðursins sem gekk yfir landið.„Þetta voru 3600 farþegar sem hafa verið endurbókaðir með nýrri ferðaáætlun. Fyrst, við náðum að koma nokkrum í flug strax í gær en flestir þeirra fá flug þá í dag eða á morgun,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.Appelsínugul veðurviðvörun var í gildi fyrripart dags. Strax seinni partinn í gær var flugáætlun þó komin á réttan kjöl. Allt flug var á áætlun í morgun.„Þannig að við erum bara nokkuð stolt af því að hafa náð áætlun strax á kjöl aftur og að koma öllum farþegum með öðru flugi, við þurftum að setja upp eitt aukaflug en annars höfum við náð að koma farþegum með öðru áætlunarflugi okkar,“ segir Guðni.
Fundu nýjar ferðir fyrir 3600 farþega Icelandair

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta