Forseti Belarús, Alexander Lukashenko, og leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong Un, undirrituðu samstarfs- og vináttusáttmála við mikla athöfn í Pyongyang í gær. Lukashenko var í sinni fyrstu opinberu heimsókn í Norður-Kóreu og fékk hann góðar móttökur hjá Jong Un.Utanríkisráðherra Belarús, Maxim Ryzhenkov, sagði að löndin hefðu einnig samið um samstarf á mörgum sviðum, allt frá landbúnaði til upplýsinga. Viðskipti milli landanna eru minniháttar, Belarús flytur meðal annars út lyf og matvæli til Norður-Kóreu. Belarúsar hyggjast þó flytja inn ýmsar snyrtivörur frá Norður-Kóreu.Báðar þjóðirnar hafa veitt Rússum aðstoð í tengslum við innrás Rússa í Úkraínu. Innrás Rússa hófst frá Belarús og rússnesk kjarnorkuvopn eru geymd í Belarús. Leyniþjónusta Suður-Kóreu og vestrænar leyniþjónustur áætla að No