Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

2,1 tonn af kókaíni fannst í flutningagámi frá Panama

Breska ríkislögreglan gerði í gær upptæk 2,1 tonn af kókaíni sem fannst í flutningagámi sem var á leið frá Panama til Bretlands. Í fréttatilkynningu frá bresku ríkislögreglunni National Crime Agency (NCA), kemur fram að landamæraverðir í London Gateway-höfninni hafi fundið efnin, sem voru vandlega falin innan um leirmuni og eldhúsbúnað, í gámnum sem átti að fara áfram til Noregs.Talsmaður bresku ríkislögreglunnar, National Crime Agency (NCA), sagði í samtali við norska fjölmiðilinn VG að hann gæti hvorki staðfest né hafnað því hvort hluti eða öll fíkniefnin hafi verið á leið til Noregs. Götuverðmæti efnanna í Bretlandi er talið vera um 80 milljónir punda, sem er yfir 13,2 milljarðar íslenskra króna.
2,1 tonn af kókaíni fannst í flutningagámi frá Panama

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta