Framboðslisti D-listans í Snæfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fara fram þann 16. maí var samþykktur á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ í kvöld.Listann leiðir Auður Kjartansdóttir, fjármálastjóri.Eiríkur Böðvar Rúnarsson, véltæknifræðingur, og Jón Bjarki Jónatansson, sjómaður, skipa annað og þriðja sæti.„Í síðustu sveitarstjórnarkosningum hlaut D-listinn fjóra bæjarfulltrúa af sjö og gefa þrír af þeim kost á sér áfram til forystu, þau Auður Kjartansdóttir, Júníana Björg Óttarsdóttir og Jón Bjarki Jónatansson,“ segir í tilkynningu.„Bæjarstjóraefni D-listans er Kristinn Jónasson, núverandi bæjarstjóri í Snæfellsbæ, en Kristinn hefur verið bæjarstjóri þar síðan árið 1998 eða í 28 ár.“