Forsvarsmenn Klíníkurinnar telja það ekki hagkvæma lausn að eiga í samstarfi við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur legurýma. Þjónustan sé of frábrugðin starfsemi Klíníkurinnar og kalli á of mikla uppbyggingu hvað varðar aðbúnað og mannafla. Meðal annars þyrfti að gera miklar breytingar á húsnæði fyrirtækisins og þar að auki yrði um tiltölulega litla rekstrareiningu að ræða.