Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir í sex af ellefu landshlutum á morgun vegna norðan- og norðvestan hríðar. Fyrsta viðvörunin tekur gildi á Vestfjörðum klukkan tvö í nótt og svo klukkan fjögur á Ströndum og Norðurlandi vestra. Þá er varað við norðanhríð á sunnanverðu Snæfellsnesi í fyrramálið.Klukkan ellefu taka gildi viðvarnir fyrir Faxaflóa og Breiðafjörð.Á Suðausturlandi og á Miðhálendinu verður gul viðvörun annað kvöld og fram á laugardagsmorgun.Veðurstofa Íslands