Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

MR tryggir sér sæti í úrslitum Gettu betur eftir sigur á FSu

Menntaskólinn í Reykjavík tryggði sér sæti í úrslitum Gettu betur eftir 36-25 sigur á Fjölbrautaskóla Suðurlands.Menntaskólinn í Reykjavík leiddi 18-13 eftir hraðaspurningar og hélt skólinn forystunni allt til enda. MR er sigursælasti skóli keppninnar en alls hafa MR-ingar sigrað 23 sinnum.Fjölbrautaskóli Suðurlands hefur sigrað keppnina einu sinni, það var á upphafsári keppninnar árið 1986.Í næstu viku mætast Verzlunarskólinn og Menntaskólinn á Egilsstöðum; eftir þá viðureign kemur í ljós hvaða skóli það verður sem mætir Menntaskólanum í Reykjavík í úrslitakeppni Gettu betur. Úrslitin verða haldin í Háskólabíói þann 11. apríl.
MR tryggir sér sæti í úrslitum Gettu betur eftir sigur á FSu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta