Einn af hverjum fimm Færeyingum flytur úr landi og kemur ekki aftur. Kosningar til Lögþingsins sem fara fram í dag snúast því um að skapa framtíð sem togar fólk aftur til landsins, að mati fyrrverandi formanns Vestnorræna ráðsins. Færri konur eru í framboði núna en síðustu ár. EINN AF HVERJUM FIMM FLYTJA ÚR LANDI OG KOMA EKKI AFTUR Um 39 þúsund Færeyingar kjósa til Lögþingsins í dag. Aksel V. Johannesen lögmaður og formaður Jafnaðarmanna boðaði til kosninga eftir að stjórnin sprakk í lok febrúar vegna ósættis um atvinnumál og lagningu neðansjávarganga.Steinunn Þóra Árnadóttir er fyrrverandi formaður Vestnorræna ráðsins. Hún segir efnahags- og húsnæðismál, þá sérstaklega yngra fólks, hafa verið áberandi í kosningabaráttunni.„Það hefur verið bent á að einn af hverjum fimm Færeyingum flytu